Unnar
26.03.2008 19:15:23 / unnar

Fall krónunnar og Evrópusambandið

Við Íslendingar erum svo miklar rollur  Það er alveg nóg að ein kindin fari úr hópnum og þá veit restin ekki hvort þær eigi að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist eða hvort þær eigi að elta þessa einu sem fór að bíta annarsstaðar.  Kaosin verður svo svakaleg að allir hætta að bíta og byrja jarma eins og þær eigi lifið að leysa, það er ekki fyrr en allir eru hættir að jarma að hægt er að mynda hóp aftur.
Það hefur verið velmegun í 10-12 ár.  Atvinnuleysi í lágmarki og flestir hafa það bara nokkuð gott.  Fáir glæpir sem reyndar hafa farið stigmagnandi síðustu ár og við erum í öðru sæti hjá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna yfir hvar það er best að búa í heiminum.  Þannig að allt í allt þá erum við nú í ágætum smókíng miðað við restina af heiminum.
En allt kemur fyrir ekkert.  Þrátt fyrir að nokkrir hárfagrir einstaklingar sem hafa verið gerðir að goðsögnum og verndurum Íslands af Íslenskukennurum stóðu upp og mótmæltu allir hástöfum fyrir börn og barna börn þá má ekkert móti blása  og þá viljum við öll fara á hnén.
Um leið og fylgi krónunnar féll þá aukst fylgi þeirra sem vildu ganga í Evrópusambandið.  Evrópusambandið sem hefir mikið verið rætt um að undanförnu.  Allir vilja taka upp Evruna sem er svo frábær gjaldmiðill.  Þó ég sé ekki fylgjandi því er ég þeirrar trúar að við verðum komin í Evrópusambandið innan tíðar, hugsanlega 8-10 ára.  En þegar við förum í Evrópusambandið eigum við að gera það á okkar eigin forsendum.  Við eigum ekki að hlaupa hauslaus útum allt og hlusta ekki á smalann ef ein rollan hleypur í burtu.  Það sem mér finnst merkilegast við allt þetta írafár er að um leið og völuspár og seyðkarla segja að við séum ekki lánhæf og að við skuldum alltof mikið þá er heimsendir hjá 90% Íslendinga.
Það breytist ekkert hjá okkur.  Lífið heldur alveg áfram.  Það eina sem þarf að gera er að taka á vandamálinu í rólegheitum.  Við stöndum ekkert illa, við erum hvorki kiðfætt né stuttfætt heldur aðeins örlítið móð eftir hlaupin uppá móti á öllum þeim ferlum sem við höfum verið að hlaupa.
Mér finnst furðulegt hvað verið er að tala um að nú sé efnahagsbólan að kólna og þensla Íslenska markaðarins að dragast saman þegar meiri hluti lífsins hefur ekkert breyst fyrir utan það að einhver líkindareikningur segir að við séum mínus en ekki plús.
Útrásin stoppar ekki fyrr en við hættum að þora og það þar vonandi meira heldur spátíðindi galdrakarla og fariseia.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 00:30:45 / unnar

Æðin sem ganga yfir

Alltaf kemur heimurinn með eitthvað nýtt. Fyrst var það poxið, svo var það Pokemon á eftir því kom draco´s og á meðan allt gekk yfir fíluðu krakkar línuskauta, hjólabretti, hjólabretti sem var sem línuskautar bara með járnröri á milli, jójó, rafmagnsbílar sem gátu keyrt í torfærum og prjónað, skopparaboltar, límmiðar, hackysack og hlaupahjól. Guð einn veit hvað ég eyddi miklum tíma í að læra hvað allir þessir Pókemonar hétu, hvað ég lagði mikla vinnu í að læra þetta fokking spil. Og tilhvers ? Ég verð að viðurkenna að þetta er ekki eins lífsnauðsynlegt og ég sagði alltaf mömmu þegar ég eyddi pening í þessa Pókemon pakka. Ég hef ekki enn lent í því að það sé haldið byssu að hausnum á mér og ég segi "Hey slíðraðu byssuna þína, ljúkum okkar málum yfir góðu Pókemon spili". Það er rosalega fyndið hvað krakkar falla fyrir svona rugli. Svona æðum sem ganga yfir og allir bara verða að taka þátt. En bíðið augnablik. Hvað gerist þegar þessir krakkar verða eldri ? Hætta þau að taka þátt í æðum eins og pox og pókemon ?

Nei. En í staðin koma bara ný markmið. Hver getur keyrt hraðast ? Hver getur sofið hjá flestu stelpunum ? Hver getur drukkið mest ? Hver á flestu MySpace vinina ?

MySpace. Þetta er fyrirbæri sem að er ofvaxið mínum skilningi. Kannski er ég bara búinn að taka þátt í of mörgum æðum. Kannski hef ég sagt of oft við mömmu "Mamma þú skilur ekki ég bara veeeerrrð að eignast svona línuskauta(eða hvaða annað æði sem gekk yfir) ef ég fæ ekki svona þá verðum æskan mín ömurleg og ég dey því aaaallir aðrir eiga svona" nú auðvitað hætti maður að biðja þegar maður eignaðist loksins pening en tilgangurinn var alltaf sá sami. Að vera með. En nú virðist ég bara ekki ætla að skilja hvað æðið gengur út á. Ég hef farið inná svona MySpace síður. Ég hef STOFNAÐ svona síður. Hvað er málið ? Þetta er nákvæmlega eins og blogg. En nei, fyrirgefið mér myspacearar. Þið bloggið ekki. Þið COMMENTIÐ bara hjá öðrum myspaceurum. Svo er sett inn tónlist og svona display mynd. Fyrirgefið en ég verð bara að spyrja. Fann enginn af þessum 5 miljón myspaceurum ekki betri mynd af sér ? Án alls gríns og glens þá er eins og allir sem ég þekki og nota myspace hafi fundið eins ljóta mynd af sér og sett hana á þetta dæmi og ég þekki ekki mikið af ljótu fólki. Er einhver keppni í gangi ? Er þetta svona uglypeople.com grín sem ég bara virðist ekki ætla ná ?

Og afhverju þurfa allir að eiga svona marga vini ? Ég á bara 6-7 vini. Ég skammast mín ekkert fyrir það. Það eru þeir 6 sem koma hér inn til að athuga hvort ég sé að segja e-ð að viti eða bara almennt að röfla. En fólk sem þykist eiga 247 vini eru bara lygarar. Og vitiði hvað ? Það er ljótt að ljúga.

En það er ekki það versta. Fólk er farið að nota þetta sem kaffihús. Bara að spjalla í rólegheitunum og kynnast nýju fólki. Hvað er að ? Erum við virkilega loksins orðin svo löt að við nennum ekki einu sinni að fara út og hitta nýtt fólk ? Þurfum við fyrst að myspace-a það og sjá hvort það eigi nógu marga "vini" áður en við hittum það í raun og veru ? Virkar þetta svona eins og "rating". Því fleiri vini sem þú átt því meiri líkur eru á að fólki líki við þig í alvöru ?

En svo má ekki gleyma því að ALLIR eru með þetta MySpace dæmi. Hverju missti ég af ? Ég var að vera cool og vera með þegar allir voru með blogg ? Ég sé það að ég get alveg eins hent gemsanum mínum og fengið mér Windows 95 aftur því ég er greinilega ekki inn.

Ég ætla ekki einu sinni að reyna fylgja straumnum í þessu. Ég er farinn að telja Pókemon spilin mín aftur. Góða Nótt



Athugið:

Taka þarf ofangreindum pistli sem gríni en ekki árásum á einn né neinn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 17:24:49 / unnar

Náttúruvernd fyrir vitleysingja ?

Ég sem ungur maður, maður sem á eftir að taka við jörðinni í einu eða öðru ástandi er farinn að hafa áhyggjur af því hvernig ástandi hann verður í þegar ég tek loksins við honum.

Ef við förum inná línur hægri manna og tölum um manninn eins og hvert annað dýr og berum okkur saman við þróunar kenningu Darwins ( Þeir hæfustu lifa af "Survival of the Fittest ) sem er í fyrsta lagi heimskulegt en það er önnur færsla, þá er maðurinn ekki eins frábær og við höldum.

Ef við búum okkur til stað í náttúrunni þá erum við ekki hjá kjötætum eða öðrum spendýrum eins og við viljum svo oft halda. Maðurinn myndi nefnilega passa eins og flís við rass hjá öllum þeim plágum sem á heiminn hafa herjað. Með stóriðju og landeyðingu, sem eru stærstu vandamál samtímans ( fyrir utan siðferðisbrenglun ) erum við að drepa okkur sjálf. Alveg eins og lítið barn þá endurtekur náttúran sig alltaf aftur og aftur. Mesópótaía, Egyptar, Róm, Alexandría og núna Bandaríkin hafa alltaf haft þessa þörf fyrir að eyðileggja fyrir sjálfum sér. Það er ekki nóg að eyðilggja samfélagið og menninguna heldur þarf maðurinn líka að taka náttúruna niður með sér í þetta skiptið.

Eins og kannski flestir vita erum við að steikja jörðina. Og þetta er ekkert eru kannski góðar fréttir fyrir Íslendinga sem finnst voða fínt að fá krabbamein í ýkt þrútna vöðva sína en ef við höldum áfram að eyðileggja jörðina á þennan hátt þá þurfum við að glíma við fleiri vandamál heldur en krabbamein á stærð við farsíma.

Ósonið í loftinu eyðir skaðhættur UV geisla(útfjólublárra geisla sem valda krabbameini) en þegar við losum CFC efnin (með stóriðju) út í andrúmsloftið eyðum við ósoninu sem veldur gati á ósonlaginu. Ekki nóg með það að þetta gerir gat á það eina sem að heldur okkur á líf, þá erum við að eyðileggja líka líf barna okkar því CFC efnin eru lengi að eyðast og geta verið þarna uppi í fleiri fleiri ár.

En auðvitað vill maðurinn meira. Hversvegna að hætta eyðileggja heiminn þegar við getum brosað colgate brosi með gallaða húð ( brúnka/tan er varnarráðstöfun húðarinnar gegn sólinni, þ.e. hvít húð er heilbrigð etc.).

Gróðurhúsalofttegundir eru nauðsynlegar til þess að viðhalda lífi á jörðinni. Þegar sólin sendir geisla sína á jörðina þá endurkastast þeir aftur í í geim eftir að hafa lent á plöntum sem ljósstillífa þeim eða á jörðinni. Þegar þeir endurkastast þá grípa þessar gróðurhúsalofttegundir geislana og senda þá aftur til jarðarinnar. En þegar mengunin er orðin svona mikil þá er alltof mikið af gróðurhúsalofttegundum og hvað haldiði að gerist þá ? Sumar á Íslandi ?

Já, kannski í 10 ár. Á meðan verður hitinn svo mikill í þróunarlöndunum að fólk gæti brunnið lifandi í hitanum. Ég ætla ekki einu sinni að tala um bræðslu heimsskautanna því það er svo mikið í umræðunni.

Nú, á meðan þessi hætta steðjar að og við getum dáið út á næstu 50 árum eða svo og heimurinn er að berjast fyrir minnkun mengunar og að fólk verði meðvitaðra um þessa hættu sem blasir við þá þarf Ísland auðvitað að vera öðruvísi. Að sjálfsögðu þarf gamla góða Ísland sér þarfir. Við þurfum að sjálfssögðu meiri mengunarkvóta. Við viljum menga meira og meira. Allt til þess að græða meiri pening. Og að losa okkur við alla fátæka og óvinnufæra af landinu helst. Ekki vil ég sjá öryrkja labbandi um sömu götur og ríku tænar mínar allavega. Því allir vita að fátækt er jafn smitandi og holdsveiki.

Nei auðvitað ekki. En á þennan stað stefnir heimurinn. Í hvert skipti sem við drepum tré drepum við börnin okkar. Í hvert skipti sem við hugsum meira um Levi´s en mengunina sem það kostaði til að framleiða þær þá drepum við börnin okkar.

Við þurfum ekki að hætta neyslu alveg eins og hægri flokkar og aðrir fávitar segja að náttúruverndarsinnar vilji meina heldur aðeins að endurskoða lífsviðhorf okkar og hugsa um hvort sé betra:

Betra líf í grænum skógi eða Krabbamein í krúttlegum kroppi.

 

Kveðja

Unnar Freyr Jónsson


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 14:06:17 / unnar

Brosum og Hlæjum

Ég er búinn að vera vinna í grein í langan tíma. Ég hugsa að ég vinni töluvert meira í henni áður en ég skelli henni inn því það er erfitt að komast að orðum um þá pælingu.

En svo ég komi mér nú að núverandi málefni þá hefur það farið mikið fyrir brjóstið á mér hversu fúl og þunglynd við erum öll. Það er eins og við séum öll að bera áhyggjur alheimsins á herðum okkar.

Mér finnst vanta virðingu fyrir náunganum í okkur Íslendinga. Mér finnst vanta það að við virðum einstaklingana í kringum okkur og tilverurétt þeirra. Það drepur ykkur ekki að spjalla við ókunnuga. Það drepur ykkur ekki að brosa framan í sæta strákinn sem þið eruð að afgreiða eða stelpuna ef því er að skipta. Að mínu mati ryðjumst við áfram með fruntuskap og frekju og hugsum ekkert um neitt nema sjálf okkur. Hafið þið hugsað út í það hvað þið fáið miklu betri þjónustu ef þið brosið bara aðeins og sláið á léttar nótur ? Ég vinn nú við þjónustustörf og um leið og kúnninn brosið aðeins þá fær hann sjálfkrafa betri þjónustu frá mér, þetta gerist bara ósjálfrátt. Það sama gildir um umferðina. Ef við öll myndum bara reyna sýna smá tillitsemi og ánægju myndi allt ganga mun betur fyrir sig.

Það vantar 5 skrefa áætlun á Ísland. Hún þyrfti að heita Brosum og Hlæjum. Við þurfum að hætta vera svona þung á okkur. Ég hugsa að það þurfi að kenna mörgum að brosa uppá nýtt. Að minni reynslu allavega er fólk svo upptekið afþví að verða blimmalimm um helgar að það gleymir því að það geti skemmt sér og brosað án áfengis. Ef við ímyndum okkur línu. Í annan hópinn setjið þið einstaklingar sem drekka hverja helgi eða a.m.k aðra hverja helgi af ykkar vinum og kunningjum. Og í hinn fólk sem drekkur ekki eða lítið. Eftir því sem að fólk drekkur oftar og meira því minna getur það skemmt sér án áfengis og það færist alltaf meira og meira í burtu frá línunni og hinum hópnum sem drekkur ekki. Auðvitað eru til undantekningar frá þessum alhæfðu staðhæfingum mínum en þetta virðist samt sem áður ganga í grófum dráttum yfir flesta þá sem ég hef kynnst á minni stuttu ævi. Þeir sem að drekka í miklu magni verða eru alltaf minna og minna til í að skemmta sér á öðrum forsendum ( er ekki að tala um þig Arnar, slepptu því bara að commenta ).

Ég er ekki að segja að þetta fólk sé leiðinlegt og algjörlega vonlaust, heldur einungis að það þurfi að læra að skemmta sér án áfengis. Það er í raun sáraeinfalt og byggist á ævafornri hefð sem að börn stunda á hverjum degi þó það fari minnkandi nú á öld ljósvakans en sú tækni byggist á því að skemmta sjálfum sér. Þessi aðferð er sársaukalaus og gífurlega áhrifarík. Það eina sem þarf er vilji og ímyndunarafl. Ég er ekki að segja að þið þurfið að fara að upplifa World of War Craft í heiðmörkinni, þó það væri án efa áhugavert, heldur einungis að læra að brosa að vitleysingum eins og mér. Taka þátt í því að lífga uppá lífið. Hvernig væri það sem dæmi ef að ég myndi labba inní matsalinn í MK með lag sem hægt er að dansa við og byrja dansa. Í stað þess að byrja að dansa með mér myndu flestir án efa hugsa "Ekki ætla ég að þora dansa með honum, ég missi algjörlega kúlið mitt". En hvers virði er þetta "kúl " ef allir eru "kúl"? Er þá ekki bara betra að vera lúðalegur sveitalubbi sem dansar inní matsal og skemmtir sér ?

Um leið og fólk færi að geta skemmt sér á svipuðum forsendum þ.e. hlegið að lífinu þá færum við öll að verða kurteisari og glaðari.  Viljið þið ekki eiga glaðan dag?  Viljið þið ekki Brosa og Hlæja ?

En hvað veit ég ?  Ég er bara fátækur námsmaður sem reynir að vera jákvæður. 

Kveðja

Unnar Freyr Jónsson 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 13:18:20 / unnar

Vandamál samfélagsins ?

Í fréttaflutningi, ræðum, umtali og samræðum dagsdaglega er ríkinu, leikskólum, skólum, tómstundarstöðum, kennurum, leiðbeinendum, lögfræðingum, sjónvarpsstjörnum, tölvuleikjum, myndbandsleigum og lista sem er svo langur að það er ekki hægt að koma honum fyrir í vesælli bloggfærslu, kennt um allt það sem fer úrskeiðis í uppeldi barna.  Og vissulega hefur þetta stór áhrif á viðmót og hegðun barna.  En fyrirgefið mér ef ég fer út á hálan ís hérna, en vandinn liggur fyrst og fremst hjá foreldrum.  Foreldrar eru bara ekki að standa sig í stykkinu.  Við lifum í samfélagi eins og ég hef svo oft sagt áður sem byggist á hraða og stressi.  Þessi hraði tekur frá okkur bæði andlega og líkamlega orku sem við ættum annars að nota til að ala upp börnin okkar.  En í staðin fyrir að sinna börnunum þá eru þau sett fyrir framan sjónvarp, tölvu eða send út að leika til að fullorðna fólkið geti farið inná leikjanet.is eða einkamál og talað um hversu erfið börnin eru.

Auðvitað eru sum börn erfiðari en önnur, guð forði mér frá því að segja bara að þetta sé bara væl í foreldrum.  Ég á tvær systur og þær eru báðar snargeðveikar í skapinu og ég ætla ekki einu sinni að byrja að tala um skapið í sjálfum mér en þá fyrst fer fólk að loka mig inni.  En oftast þegar ég sé gargandi krakka í kringlunni, smáralind eða hvar sem er þá er hann organdi einungis því foreldrarnir eru ekki að hlusta.  Það er ekki nóg að segja bara “aha”.  Börn eru manneskjur og þurfa mannleg samskipti rétt eins og við hin.  Það er ekki nóg að setja þau bara á ritalín þegar þau óþekktast aðeins og kenna fjölmiðlum ljósvakaaldar um.  Til þess að taka á vandanum þurfum við að taka höndum saman.  Sameinast í því að ala upp börnin.  Það er búið að prufa þessa félagsfræði aðferð um að leyfa þeim að gera allt sem þeim sýnist og hún gengur bara einfaldlega  ekki upp.  Það er komið að því að við þurfum að taka á þessum krökkum.  Það eina sem að hjálpar börnum að komast út í samfélagið er agi.  Þetta hljómar harkalega en ég er ekki að tala um ærumeiðingar, skítkast eða vera laushentur heldur bara að koma þeim í skilning um það að þau komast ekki upp með neitt múður.

Ef að barn sem sett er á ritalín en er ekki ofvirkt að neinu marki, þá líður barninu bara illa.  Það fær höfuðverki, verður þunglynt og heldur jafnvel minni einbeitingu.  Og hverskonar foreldri setur barnið sitt á ritalín bara til þess að geta séð aðeins meira af OC ?

Enn og aftur ekki misskilja mig.  Til eru börn sem að þurfa þessa aðstoð.  Til eru krakkar sem að líður illa þar til þau komast í ritalín og þá allt í einu upplifa þau heiminn í nýju ljósi. 

En nú komum við að kjarna málsins.

Ef að popptíví er að sýna gálulegar stelpur fáklæddar þá er það hlutverk foreldrar að segja barninu að svona eigi maður ekki að klæða sig því þá er maður gálulegur.  Ef að Barnið verður ofbeldisfullt af GTA-tölvuleiknum sem snýst fyrst og fremst um ofbeldi þá er það hlutverk foreldranna og minnka spilunartíma barnsins og útskýra fyrir barninu afhverju ofbeldi sé slæmt.  Ef að kennarinn hefur eina skoðun en foreldrarnir aðra þá er það hlutverk foreldranna að sannfærabarnið sitt um skoðun sína.  Því það er ekki hlutverk samfélagsins að ala upp barnið heldur foreldranna.  Því ef foreldrar kenna ekki börnunum sínum þá eiga þau aldrei eftir að læra muninn á réttu og röngu.

Tökum okkur stund í hversdagsleika skammdegisins.  Stoppum aðeins þegar allt er orðið svart og tölum við börnin okkar.  Þau hafa svo margt að segja.  Því það sem við átlítum sjálfsagða hluti kunna börnin að meta.  Þau koma oft með heimspekilegar pælingar sem að við höfum gott að þvi að  heyra.  Því að efa við hlustum ekki á börnin okkar, hvernig getum við þá ætlast til þess að einhver annar geri það ?

Unnar Freyr Jónsson


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 17:42:21 / unnar

Höfum við gengið til góðs ?

Höfum við gengið til góðs, götuna fram eftir vegi ?

Heimurinn sem samansettur úr atómum sem eru örlitlar kúlur sem ganga einfaldlega út á rafmagn.  Þessi atóm eru saman sett úr fimm ennþá minni eindum sem nefnast kvarka.  Þessar eindir hverfa og birtast og ferðast vegalendir sem við getum ekki einu sinni ímyndað okkur.  Og þegar þær birtast á nýja staðnum vitum við ekki einu sinni hvort þær innihalda þessa sömu fimm kvarka og hún innihélt áður þannig að tæknilega séð er þetta ekki einu sinni sama atómmið.  Flestar lífverur sem búa á þessari jörð eru byggðar uppúr amínósýrum.  Þær geta raðast upp á svo marga vegur að engir tveir einstaklingar eru nákvæmlega eins.  Á jörðinni telst maðurinn vera gáfaðasta lífveran.  Hann hefur getað hugsað í tiltölulega stuttan tíma þegar litið er á sögu jarðarinnar.  Einnig eru afrek hans alveg eftir því. 

Eins og ég sagði þá snýst lífið meira og minna um þessi atóm sem eru alltaf að hverfa og birtast með svo miklum hraða út um allt að ekkert efni er stöðugt.  Tæknilega séð erum við ekki ”gegnheil” eins og okkur finnst svo gott að trúa.  En þessi atóm mynda allavega heild sem að við nefnum svo efni.  Þessi efni geta verið allt frá vatni og upp í fjöll.  Þessi efni mynda síðan það sem nefnt er jörð.  Þessi jörð tekur síðan þátt í samstarfi fleiri jarða í að mynda vetrarbraut og þessi vetrarbraut tekur síðan þátt í því verkefni að mynda alheiminn en hvað er fyrir utan þennan alheim er okkur ekki kunnugt um en það tekur líka þátt í því að mynda það sem að við köllum líf.  Ef við færum svo aðdráttarlinsuna aftur á þessa tilteknu jörð þá sjáum við fljótlega þennan mann.  Hann hefur skapað hluti sem hann er alveg rosalega stoltur af.  Fyrst er hægt að nefna þar tímann.  Þessi tími er alveg gífurlega afstæður.  Hann líður alveg óháð náttúrunni, jörðinni og alheiminum og það besta er að þeir miða hann við fæðingu einhvers manns sem fæddist fyrir tíma sem að nær ekki einu sinni að vera 1*10 í mínus miljónbiljónasta veldi hluti af tíma alheimsins.  Einnig hefur hann skapað gjaldmiðil, fæstir virðast eiga en flestir vilja eignast.  Um þennan tilbúna gjaldmiðil, sem virðist ekki vera neitt annað en vesen, hefur manninum tekist að skapa styrjaldir og atvinnur sem að ég ætla víkja hér að.  Miðað við hversu merkilegur heimurinn er og miðað við hversu meðvitaður maðurinn er um merkilegheit alheimsins virðast þessi störf vera alveg lítilfjörlega tilgangslaus.  Innan sinnar lítilmerku lífheildar sem þeir hafa nefnt ”samfélag” kemur klárlega í ljós hversu fáfróður hann er þrátt fyrir að hann haldi öðru fram.  Fyrst sem dæmi lá við að maðurinn dæi út.  Hann var tegund sem var veikburða, veikbyggð og það er ótrúlegt hvernig hún lifði af allar þær hættur sem að stafaði að þessum stofni.  Smám saman fór hann samt að sækja á hallann og einhversstaðar í miðri brekku  þá ákvað hann að ef hann væri með eitthvað dinglumdangl þarna á milli þá væri hann betri heldur en þeir sem hefðu það ekki.  Þeir kölluðu þetta kvenkyn og karlkyn.  Karlkynið hafði dinglumdangl en kvenkynið ekki.  En þegar hér var við sögu komið þá var maðurinn líka farinn að skilgreina hvað væri flott.  Í þetta skiptið var það flott að hafa hvítan hörundslit þ.e. húðin þeirra (húð er mjúk himna sem heldur öllum hlutum líkamans saman).  Þeir sem voru með hvítan hörundslit tóku aðra sem höfðu ekki hvítan hörundslit og létu þá vinna fyrir sig, og fyrirlitu þá jafnvel.  Síðan einhverjum 500-1000 árum síðar vilja allir líkjast þessum svörtu.  Fólk þyrpist á staði sem það kallar ljósabekki en þar eru litlir bekkir sem að líkja eftir innrauðum geislum sólar.  Og þetta gerist allt á meðan eindirnar eru að hverfa og birtast.

En af öllum þeim frumefnum sem að heimurinn býður uppá og af öllum efnasamsetningum sem að eru þekktar höfðar ein alveg rosalega mikið til mannsin.  Og það er áfengi.  Allar hefðir sem að maðurinn hefur, öll trúarbrögð, allir siðir, allar venjur, allar vinnur, öll afþreying  og í raun allt sem maðurinn gerir tengist áfengi á einn eða annan hátt.  Hvort sem það er vinna þá vinna þeir einungis til þess að geta keypt áfengi.  Öll þeirra samfélagslega uppbygging snýst markvisst um að ungmenni þeirra noti eða muni nota þessa efnasamsetningu.  Með hugtökum sem þeir kalla markaðsfræði, efnishyggja og partý þá stuðla þeir markvisst að því að allir noti þessa atómsamsetningu.

Og af öllum þeim möguleikum sem lífið(alheimurinn) hefur uppá að bjóða þá er þessi atómsamsetning sú sísta sem maðurinn ætti að nota.  Hann verður veikgyðja, hann gerir hluti án þess að hugsa þá í gegn, honum líður illa daginn eftir, hann verður oft mjög háður, hann eyðir öllum sínum gjaldmiðli í þetta svokallaða áfengi og oftar en ekki hefur slæm áhrif á aðra menn.  Auðvitað eru til önnur dæmi um skaðlega efni fyrir mannin en þetta er það sem maðurinn virðist bara ekki ætla að læra.

Einnig hefur maðurinn rosalega mikla þörf fyrir það að horfa á aðra menn hreyfa sig.  Þeir fresta fréttum til þess að horfa á þá, þeir neyta mikils áfengi þegar þeir eru að horfa á aðra hreyfa sig, þeir öskra á tæki sem þeir nefna sjónvörp ( þau sýna hvað er í gangi annarsstaðr í heiminum), eða þá að þeir hittist margir saman og öskra á þá sem eru að hreyfa sig.  Og á sama tíma virðist enginn hafa áhuga á því sem er að gerst í heiminum á meðan.  Þar virðist menn vera deyja ( þessir sem voru með svarta hörundslitinn) útaf fátækt og hugtaks sem að þessi hvíti kallar menntun ( það sem þeir læra ).  Og á sama tíma virðist enginn hafa áhuga á því þegar einhver á þessari jörð uppgvötar eitthvað merkilegt um alheiminn.  En auðvitað er samfélag mannsins miklu merkilegra heldur en lífið sjálft.  Því maðurinn hefur fundið sér gervitilgang í lífinu með alskyns gerviþörfum.  Því hver nennir að rannsaka um hvað lífið snýst ?

 

 



Með kveðju

                                    Unnar Freyr Jónsson


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 13:10:25 / unnar

Opið bréf til beztu þjóðar í heimi.

Kæru Íslendingar.
Stundum þegar ég les fréttirnar verð ég klökkur.  Síðan langar mig að meiða einhvern.  Örlitlu síðar hugsa ég mig um og kemst að því að það er engin lausn.  Þetta gerist í hvert skipti sem ég sem dómana sem kynferðisafbrota menn fá hér á landi.
Fyrirgefið en ég bara verð að spyrja eru barnaperrar með afsláttar miða hjá hæstvirta hæstarétti?  Fær maður afslátt af dómnum ef maður misnotar fleiri börn ?
Rétt í þessu las ég morgunblaðið og sá að hæstiréttur stytti dóm manns, sem var alltof stuttur í fyrsta lagi, sem hafði misnotað fimm stelpur.  Hann fékk 18 mánuði.  Fyrir minn smekk er það 10 árum of lítið.  Vissulega gengur ekki að loka þá bara inni því þeir eiga bágt en það virðist vera alvarlega að svíkja undan skatti en að misnota lítil börn !
Og ekki megum við gleyma því að hann þurfti að borga þeim sekt.  Takk hæstiréttur ! Okkur líður öllum betur núna !  Þær fengu pening !
Afhverju horfið þið á peninginn.  Þessar stelpur hafa hlotið andlegan skaða sem að hverfur ekkert þó þær hafi fengið einhvern pening.  Þær eru ekki þroskaheftar, þær geta alveg unnið fyrir sér í framtíðinni.  Það sem er hinsvegar verra er það að þessi maður losnar út eftir 18 mánuði.  Hann hefur misnotað fimm stelpur í fortíðinni.  Síðan lokum við hann inni í fangelsi þar sem við dekrum hann með góðum mat og fínum rúmum ( þökk sé glæpamanninum Árna Jónssen ) þar sem hann getur látið sig dreyma um lítil börn þangað til hann losnar. 
Hvað er í gangi hérna ?  Eru þið þessi annars frábæra þjóð alltof upptekin af starfsframa til þess að taka eftir því að það er verið að brjóta alvarlega á rétti okkar hér ?
Ég á nú ekki barn sjálfur en ég á tvær yngri systur.  Segjum sem svo að önnur þeirra yrði misnotuð, guð forði henni frá því.  Ég myndi tryllast, fara til þessa manns og ganga í skrokk á honum.  Ekki nóg með það að ég muni fá hærri dóm en hann heldur myndi ég líka láta hann fá meðaumkun og hann fengi enn minni dóm því hann væri svo aumkunar verður, svona nýbarinn og SÆTUR !
Ég hef fengið nóg.  Ég læt ekki fótum troða rétt minn og ykkar.
Ef þið viljið hjálpa mér að skipuleggja mótmæli gegn þessu broti á þjóð og landi hringið þá í síma 691-7372 ég svara símanum til 10 í kvöld og það sama gildir um laugardaginn og sunnudaginn.

Virðingarfyllsti  Unnar Freyr Jónsson

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 19:04:02 / unnar

Þjóðartungan bundin í keðjurfordóma ?

Ég geri ráð fyrir því að sumir kalli þessa grein fordómafulla, pólitískan áróður eða jafnvel illa ígrundaða. En staðreyndin er sú að ég er ekkert rosalega fordómafullur, ég tilheyri ekki neinum stjórnmálaflokki og ég hef hugsað mikið um þetta málefni. Ég vil taka það fram að ég er ekki að fordæma einn né neinn, ég vil ekki að fólk fyllist reiði eða hatri í garð nokkurs og þetta eru fyrst og fremst hugarþankar mínir og endurspegla ekki skoðanir mínar að öllu leyti. Á Íslandi búa gróflega 300.000. Við erum gífurlega fámenn þjóð. Ólíkt flestum öðrum þjóðum sem búa hér á þessari kúlu sem snýst og snýst alveg óháð því hversu mikið við rífum og kröfsum í innvið hennar með gerviþörfum okkar, þá hafa flestar aðrar þjóðir menningararf sem að skín í gegn í þeirra daglega lífi. Fagrar byggingar, hefðir, lítið mengað tungumál, leikrit og sögur. Við Íslendingar höfum að sjálfsögðu Íslendingasögurnar og enskuskotið tungumál(sem er önnur grein útaf fyrir sig) en fyrir utan þær þá eigum við fátt sem að minnir okkur á mikilfengleik þessarar þjóðar. Vissulega eigum við niðurgrotin hús út á landi sem minna okkur á hvaðan við komum, en í dag hefur engin tíma til þess að skoða þessi “skítapleis” svo ég vitni nú í ungviði þessarar þjóðar. Það sem við höfum fyrst og fremst erum við sjálf. Við höfum haldist mjög “innblönduð” í gegnum tíðina. Ég ætla nú ekki að ganga svo langt og segja að við séum “hrein”, “æðri” eða “betri” en við eigum arfleið okkar. Og arfleið okkar er mikilvæg. Á hverju ári koma frá okkur miklir tónlistarmenn, heimspekingar, vísindamenn og viðskiptajöfrar og í raun skörum við framúr á öllum sviðum nema í fótbolta og körfubolta. En við skulum ekkert fara út í þessa krónísku þörf Íslendinga sem þurfa að troða fótboltahúsnæðum útum allan bæ og styðja alltaf við fótboltamenn sem að trekk í trekk sýna að þetta sé ekki okkar vettvangur. En ef að við höldum áfram að hleypa hverjum sem er inn til landsins þá hverfur þessi arfleið. Eins og ég sagði hér fyrir ofan þá erum við bara umþaðbil 300.000. Við erum fljótari að blandast öðrum þjóðernum heldur en að skipta um fólk á alþingi. Ég er alls ekki að segja útlendigar séu slæmir, þvert á móti. Auðvitað er nauðsynlegt að fá fjölbreyttni í þjóðfélagið enda eru við fámenn og jafnvel orðin “úrkynjuð” á sífelldum samböndum innan sömu ætta á Íslandi, enda erum við fámenn þjóð. Það sem ég vil hinsvegar benda á er það að ótakmarkður innfluttningur útlendinga lítur ofsavel út í fyrstu, fjölbreyttni í trúarbrögðum, nýjar tegundir af mat, nýjar stefnur í tónlist og svo má endalaust halda áfram. En þá vil ég spyrja óskabörn vors lands og þjóðar hvað með okkar menningu? Hvað með okkar venjur ? Okkar stefnur í trúmálum , mat og tónlistarstefnur sem að fólk dáist að hvaðan sem það kemur úr heiminum. Við stöndum enn í baráttu fyrir réttindum kvenna hér á landi og sú barátta hefur staðið í yfir 100 ár. Hvernig verður staða okkar sem Íslendingar eftir 100 ár þegar hér verður orðin miðstöð allra þjóðerna í heiminum og réttindi okkar Íslendinga verður fótumtroðið ? Því er hægt að lýsa í einu orði: Vonlaus. Auðvitað er þetta öfgakennt dæmi en miðað við núverandi stefnur, skoðanir fólks og umfjöllun þá er þetta ekkert svo fjarlæg framtíð. Eins og fyrr er nefnt þá er mér ekkert illa við útlendinga. Ég hef unnið, og ég vinn með þónokkuð mikið með útlendingum daglega og þetta er yndislegar manneskur. Þrælduglegt, almennilegt og ég læri margt af því. Ég hætti að tala um útlendinga um leið og það lærir Íslensku. Mín vegna má það tala sitt tungumál heima fyrir, enda kemur það mér bara ekkert við og það er þeirra réttur að halda í sína siði og mér finnst leiðinlegt að sjá fólk ekki halda í sínar hefðir og siði. Hinsvegar þykir ofsalega aumt að sjá innflutt fólk sem sýnir ekki einu sinni vilja til að falla inní samfélagið hérna. Rasisti og kynþáttahatari eru orð sem að eru látin falla oft í daglegu tali þegar fólk tjáir skoðun sína á innflytjendum. Við látum eins og smábörn. Það má enginn hafa skoðun. Litlu börnin segja “þú mátt ekki segja kúkur” þegar sagt er kúkur. En við erum fullorðið fólk og þetta eru okkar skoðanir. Við erum ekki rasistar ef okkur er annt um land og þjóð. Raunverulega orðið sem ætti að nota er þjóðernissinni. En auðvitað er ekkert að marka mig. Ég er bara fátækur námsmaður. Ég má ekki hafa skoðun né álit. Ég á bara að þegja og bíta í það súra epli að láta vaða yfir mig á skítugum skónum. Hvernig gæti ég vitað nokkurn skapaðann hlut um innflytjendur, trúmál eða menningu. Auðvitað á ég bara að gera eins og allir aðrir gera. Ég sé ekkert, heyri ekkert og tala ekkert. Og ef ég heyri einhvern segja eitthvað annað en “Sástu leikinn í gær?” þá á ég að sussa á hann, helst slá hann utanundir rægja hann við nágranna minn, eyðileggja mannorð hans og sjá til þess að það standi enginn, og þá meina ég Enginn á skoðunum sínum í þessu samfélagi því ekki viljum við að sótsvartur almúginn fari að hafa skoðanir ? En hvað veit ég ? Ég er bara fátækur námsmaður Virðingarfyllsti Unnar Freyr Jónsson

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 22:10:23 / unnar

Langt síðan ég hef bloggað

Já ég hef ekki bloggað í lengri tíma.  Það hefur verið mikið að gera og ennþá meira í komandi framtíð.  Ég er samt sem áður mjög ánægður með það hvað það eru margir að koma á þessa síðu á hverjum degi.  Það eru alltaf svona 13-15 að koma inn á hverjum degi.  Og mér finnst það nokkuð magnað miðað við það hvað það er langt frá síðustu færslu.  Hinsvegar eru það 15 fleiri en ég sem að nenna lesa þetta röfl.  Allavega svo ég komi mér að einhverju vitrænu.  Ég er búinn að vera á fullu í skólanum, Lagasmíðakeppnin heppnaðist svona lala frábær að öllu leyti fyrir utan hvað það mættu fáir svo núna er Morfís á fullu.  Mér gengur illa að skrifa fyrri ræðuna mína þannig ég ákvað að koma hingað og röfla og tuða í ykkur svo ég geti haldið áfram með ræðuna mína.  Þegar ég er að skrifa þessa  línu hérna akkurat er ég að hugsa um eitthvað sem ég get tuðað yfir.  Og ég er kominn með það.  Fer það ekki alveg gífurlega mikið í taugarnar á ykkur hvað Framboðsauglýsingar eru allstaðar ?  Ég fór í bakaríið í gær og getið hvað.
Á húsinu er vanalega fjögurra metra baðstofu skilti.  En nei þar var búið að troða einhverjum gæja og hjá honum stóð "Ég er frábær og elskulegur"  "Kjóstu mig og þá fer þessi mynd af mér af baðstofu skiltinu".  Í fyrsta lagi þá er þetta kúgun og í öðru lagi pirrandi. 
Ef einhver skilur svona ,,Hey fokk hvað ég er frábær" djók þá er það ég.  En KOMMON þú hengir þetta ekki á baðstofu nema þú sért að segja ,,Hey fokk hvað ég er frábær og lykta vel".  OG ekki nóg með það þá er þetta fokking FIMM METRA HÁ AUGLÝSING ! KOMMON.
Svo er þetta í öllum blöðum, á öllum miðum og á öllu ! 
ÞETTA VERÐUR EKKI TÖFF FYRR EN ÞIÐ KOMIÐ MEÐ FRAMBOÐSKLÓSETTPAPPÍR !!!
Ég nenni ekki að rífast og skammast yfirþessu.  Ég ætla frekar að tala um jólin.
Jólin fara koma bráðu.  Það þýðir jólagjafi, jólaköku, jólasmáköku, jólasveinar, jólaálfar, jólafrí, jólavinna, jólaföt, jólatré, jólaskraut, jólasnjór.  SNJÓR !! Það er byrjað að snjóa.
Og talandi um það að það sé byrjað að snjóa.  Ég var í Efnafræði 103 á föstudaginn svona frekar spenntur fyrir því að það væri að koma helgi.  Var farinn að tromma á borð og allir orðnir svona frekar pirraðir á mér þá leit ég út og viti menn !  Það er kominn snjór !! Og guð hvað ég elska snjór.  Það er ekkert grín að ef að það er snjór þá er maður í góðu skapi.  Það er bara ekki hægt lífeðlissáloggeðfræðilega séð ekki hægt að finnast snjór leiðinlegur.  Og ég skal sýna ykkur fram á afhverju.  Sko:
1.  Snjór er hvítur.
--> þessi fullyrðing er sönn og þó að einhver hafi pissað í hann breytir það ekki þeirri staðreynd að snjór er hvítur sama hvernig þú lítur á það og þó þú sért litblindur
2.  Hvítur er litur sem gerir mann glaðann
--> ekki reyna að segja mér að þú horfir á hvítan lit og hugsir ,,Djöfull er ég að fara skera mig á eftir".
3.  Snjór bíður uppá endalausa leiki
--> sbr. Snjókast, búa til engla, búa til snjóvirki, möguleikarnir eru endalausir.
4.  Fjölbreyttari klæðaburð.
--> Persónulega þá er ég orðinn þreyttur á Wans, röndóttri peysu og þröngum Levi´s buxum sem nánast allir drengir sem eru 90 model eru að ganga í.
5.  Konhnís.
--> Jú það er víst gaman að fara í Konhnís og það að gera það í snjó er eintóm skemmtun,
6.  Kasta snjóboltum.
--> Þetta er jú afþreying sama hvernig þið  lítið á það.  Og það er ekki einelti að kasta snjóboltum í fólk !  Snjór er allstaðar !  Það er ekki eins og það sé verið að kasta í ykkur norðurpólstígrisdýri sem er í útrýmingar hættu ! Hættið að væla og kastið snjóboltum til baka !

Ég er búinn að röfla nóg í bili.  Ég ætla að byrja blogga aðeins oftar og þakka ykkur fyrir heimsóknirnar.  Sé ykkur í komandi framtíð.
Vagg og Velta !

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 12:10:03 / unnar

Semi - Blogg

Þetta verður stutt blogg því ég var búinn að skrifa mjög langt blogg en það vistaðist ekki.

Ég lenti í umræðu um daginn sem ég af einhverjum ástæðum lendi alveg rosalega oft í. Umræðan um það að Íslenska sé asnaleg og hvort það eigi að taka upp ensku afþví 1. Hún er meira "cool".

2. Það tala hana fleiri. Mín skoðun er sú að Íslenskan sé miklu meira töff. Hún er í fyrsta lagi gegnsæ og þar af leiðandi segja öll orð sig sjálf. Ef þú skilur ekki eitthvað orð þá snýrðu því við og þá ertu kominn með merkingu orðsins. Bara sem dæmi Sigurviss. Þá er maður Viss um Sigur. Íslenskan er öll morandi í svona þægilegum og augljósum óskráðum reglum. Að mínu mati er enskan ekki meira töff en Íslenska. Takturinn í Íslensku er ákveðinn og hljómar eins og þúsund hestar á heystireið yfir grasivaxnar sléttur sem auðvelda okkur að leggja áherslur á okkar mál. Og ef það er hægt að benda á það að fleiri tala ensku þá get ég alveg bent á það að það eru til fleiri fávitar en fólk sem er viti vaxið. Og ekki gerir það þessa vitleysingja að gáfufólki. Við eigum að vera stolt af því að forfeður okkar sögðu konungum stórvelda að eiga sig svo að við gætum talað þetta magnþrugna og töfragædda tungumál.

Lag dagsins Baggalútur - Áfram Ísland


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 13:18:35 / unnar

Nýtt blogg ?

Já undur og stórmerki ég hef ákveðið að það sé kominn tími á að blogga. Ég hef ekkert að röfla yfir í augnablikinu en við skulum sjá hvort það komi ekki. Hvað er að gerast ? Jú ég er á æfingum næstum alla daga frá 16:00-22:00 í Rocky Horror hljómsveitinni og eftir það er ég yfirleitt svo þreyttur að ég næ varla gera neitt, nema læra og sofa. Það er svosem ágætt ég er bara óvanur því að hafa lítinn frítíma í að gera ekki neitt. Og hvað vitiði mér datt í hug umræðuefni !
Hugsanir
Þegar ég hugsa þá er ég að rökræða við sjálfan mig. Ég heyri rödd mína vera að tala við tjaa ... mína eigin rödd. Ég hef aldrei pælt í þessu áður fyrr en um daginn en hvernig hugsið þið ? Ég spurði Atla, Lalla og Sigga ef ég man rétt held reyndar að Orri hafi verið þarna líka, en það skiptir ekki öllu heldur er það að þeir hlógu allir að mér. Þeim fannst það mjög skrýtið að ég talaði við sjálfan mig í huga mínum. Allt í lagi, kannski hægt að benda á það að þetta sé svona "I hear voices" thing eitthvað en hvernig hugsið þið þá ? Ef ég er svona skrýtinn þá er ég orðinn forvitinn um það hvernig aðrir hugsa. Hvernig komist þið að niðurstöðum og hvernig ákveðið þið hluti ? Þar sem ég geri sterklega ráðfyrir því að þið hugsið, og að þið stjórnist ekki bara af einhverjum natríum og kalsíum hleðslum sem hreyfast án þess að stýrihormón eða leysihormón stýrihormóna komi þar eitthvað við sögu, þá vil ég vita hvernig fólk hugsar. Endilega komið með athugasemdir.

Ósýnilegir ?
Svo er það annað.  Við sem sitjum alltaf í kaffiteríunni erum alltaf skildnir útundan í öllum plöggum og miðum sem dreyft er.  Það er alltaf litið á okkur en svo farið á öll borð nema okkar.  Þetta er meira svona innskot en nöldur en samt smá pínu mikið !  Skiljiði ?


Lokaorð
Er þægilegar að lesa þetta svona ? Fólk hefur verið að kvarta yfirþví hvað það stendur mikið í bloggum mínum og að það nenni ekki að lesa það þessvegna.
Einnig setti ég "ég" í bold og flest sem tengist mér í skáletrað til þess að vekja athygli á hvað mér finnst ég vera æðislegur.

Lag dagsins Naked and Famous - Presidentsoftheunitedstatesofaamerica

» 8 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 16:26:00 / unnar

17 Mars

Þann 17 Mars er Saint Patricks day.  Sem þýðir aðeins eitt.   VIÐ ERUM ÖLL ÍRAR !!!  Það sem við ætlum að gera að vera Írar einn dag.  Það verður bara drukkinn írskur bjór og hlustað á írska þjóðlagatónlist.  Svo verður dansað svona írska hommalega dansa.  Hver ætlar að reyna segja mér að það sé ekki skemmtilegt ?  Og auðvitað verðum við að horfa á Boondock Saints til að koma okkur í Írskt skap.  Svo verður náttúrulega að drekka írskt kaffi.  Þannig hverjir eru til ?


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 10:26:20 / unnar

Grænt te á Öskudag ?

Þetta hefur einkennst af bloggleysi hjá mér núna í tiltölulega langan tíma.  Ég er búinn að vera vesenast í einhverjum veikindum hérna heima.  Ég komst að því að það er alltof langt síðan ég var veikur síðast, ekki það að það sé eitthvað slæmt, heldur bara það að ég veit ekkert hvað ég á að gera.  Ég er að verða geðveikur, þið sem þekkið mig vitið nú að ég get verið svoldið ofvirkur oft á tíðum.  Ímyndið ykkur það og plús það að ég hef ekki fengið útrás fyrir þessa ofvirkni í 6 daga.  Ég hef ekkert getað trommað, hlaupið né neitt í 6 daga.  Ég reyndar fór í sporthúsið á laugardaginn, en það gerði voðalítið fyrir mig.  Þannig núna er ég hérna að drekka grænt te frá Kína og þetta er að gera kraftaverk !  Mér líður bara geeeðveikt vel.
Ég þori að veðja að þetta sé ekkert Te.  Kínverjar vinna pottþétt ópíum úr þessu.  Ekki það að ég viti hvernig það er að vera skakkur, stoned né trippi´n.  En ég er nokkuð viss um að það sé eitthvað líkt því að taka þetta Te, setja það í álpappír og kveikja í honum og anda að sér gufunum.  Þannig ef þið viljið verða skökk á kínversku tei, farið þá í Feng shui húsið á laugarveginum og biðjið um svona grænt te, and get stoned !
Síðan eru það önnur vonbrigði.  Í dag er öskudagurinn og ég er hvað ? VEIKUR ! Ég er með hálsbólgu.  Ég meina sumir segja "Unnar, þú ert 17.  Þú átt ekkert að vera syngja.".  Ég hef aðeins eitt að segja.  Þó ég verði 179 ára gamall og kominn með hár á staði sem ég vissi ekki einu sinni um ! Þá verð ég aldrei of gamall til að fara syngja á Öskudaginn.  Það er ekki endilega spurning um að syngja og fá nammi.  Heldur er það stemmingin sem fylgir því að vera í búning og sjá aðra.  Skemmta sér með hundruðum ef ekki þúsundum öðrum krökkum/fullorðnum í einum stórum búningaleik.  Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst geeeeðveikt gaman í búningaleik.  Sumir segja að það sé betra að fara bara á fyllerí með hatt.  En það er ekki sami hluturinn.  Þegar ég verð stór ætla ég að efla til fylgdarhóps sem tekur kannski 10 börn einhverjir tveir einstaklingar og fara með þau niður í bæ og leyfa þeim að syngja, þar sem sum börn og meira að segja nokkuð mörg börn eiga foreldra sem eru útivinnandi og geta þessvegna ekki farið að syngja.  En auðvitað skemma sömu fávitarnir þessa hugmynd eins og allar aðrar.  Barnaníðingar.  Guð minn almáttugur, það er efni í aðrafærslu það sem ég vildi gera við þá.  Það tengist steikarpönnum, staurum sem stingar í gegnum herðarblöð, girðingum, eistnaklemmum og ýmisslegu sem mér dettur í hug þegar ég heyri þetta orð.  Ég held ég kveðji að sinni þar sem mér hefur hitnað töluvert í hamsi við að hugsa um hvað ég geti gert við þessi ógeð.
Lifið heil og borðið ekki of mikið af nammi
Til hamingju með daginn Gunni
Lag dagsins Creed - With Arms Wide Open.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 12:48:16 / unnar

Retro

Um daginn var sagt við mig að ég væri Retro.  Ég eins og api vissi ekkert hvað það þýddi að vera Retro og hugsaði bara það hlýtur  að vera cool fyrst ég er það.  Síðan fór ég og kynti mér hvað það er að vera Retro.  Það þýðir að halda í gamla tísku, leiki eða hegðun og skoðanir.  Þá fór ég að hugsa er ég virkilega svona amaldags og ég komst að skoðun.  Já, ég er yfirleitt 10 árum eftir á í skoðunum.  Ég klæðist yfirleitt ekki í samræmi við nútíma tísku heldur fer eftir minni eigin sem sumum finnst vera Retro og í þau fáu skipti sem ég spila tölvuleiki eru þeir yfirleitt svo gamlir að það muna engir eftir þeim.  Þannig að samkvæmt skilgreiningunni er ég Retro.  Ég var nú bara nokkuð sáttu með þessa skilgreiningu.  En þá fór ég aftur að hugsa ég er á móti því að flokka fólk í hópa, en svo fór ég aftur að hugsa er Retro flokkun á fólki?  Núna er ég ekki að nöldra heldur spyrja.  Ég meina það hefur verið flokkun á fólki að vera metro, og einhvern tíman heyrði ég orðið hetro og fleiri þannig núna spyr ég hvernig er Retro ?  Myndi ég flokast undir það ?  Hvernig geturðu flokkað mig undir það ?  Er það gott eða slæmt ?   Eru margir svona eða er ég einstakur(auðvitað veit ég að ég er einstakur, ég vil bara heyra ykkur segja það)?
Endilega svarið.

Lag dagsins Unnar - voða dramatískt lag sem ég er ekki búinn að skýra

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 17:57:44 / unnar

Hvað varð um Spandexið ?

Ég er í augnablikinu að pæla í því hvort ég eigi að hætta þessu endalausa nöldri og röfli sem ég er að röfla yfir á þessari síðu.  Ég er svo latur við að skrifa hérna að það er eiginlega ekki fyndið.  Það er ekki það að ég sé uppiskroppa með efni.  Nei elskan mín alls ekki.  Málið er bara að mig vantar einhverja hvatningu við að skrifa hérna.  En ekki meira um það í bili.  Ég er orðinn frekar duglegur í skólanum og það kemst voða fátt annað að.  Ég er að drukkna í heimanámi.  Það er eins og kennarar haldi að ég sé bara í einum áfanga.  Allir kennarar að benda í allar áttir og ég sem hef bara einn haus þarf að fá nokkra lánaða til að fylgjast með hinum áttunum.  Annars er ég búinn að ákveða að læra alltaf heima og mæta í alla tíma ! Ég stend mig 100 % enn sem komið er (y).
Annars ætla ég að röfla í þetta sinn um nútíma rokk.  Ég hef verið að glugga í bók sem heitir "Hell Bent For Leather"(já ég er farinn að lesa aftur) og þar er verið að kenna manni hvernig maður á að vera kúl Metalhaus.  Málið er að nútíma metalhaus er yfirleitt allsekkert kúl.  Núna getur fólk eins og ég sem er bara tiltölulega snyrtilegt verið metalhausar.  Mér finnst þetta hálfkjánalegt vegna þess að ég vil fá að sjá spandex buxur með tígrismunstri á.  Ég spyr bara hvar eru netabolirnir og spandex buxurnar ?
Hver leyfði öllum að raka sig ?
Eins og kannski margir vita hef ég sterkar skoðanir á sumum hlutum.  Ég meina vissulega mega allir hafa sinn stíl og sinn smekk.  En ég vildi gjarnan fá að sjá fleiri með sítt skegg í spandex buxum.  Ef við komandi væri í leðurjakka myndi ekki spilla fyrir.  Ég fæ alltaf svona unaðstilfinningu í líkamann þegar ég sé fólk með sítt hár í leðurjakka.
Margir benda á að það sé ekkert kúl lengur að vera með sítthár og í leðurjakka.  Þá spyr ég nú bara var það einhvern tíma kúl?  Svarið er nei.  Málið er að maður er ekki kúl ef maður er með sítthár.  Maður er geðveikislega töff.  Ef maður fær sér sítthár og er í leðurjakka þá er maður að segja "Fuck the System".  Fyrir minn smekk þá finnst mér engan vegin töff að vera sólbrunnin af ljósarbekkjarlegu í janúar.
Ég er farinn að tala í hringi þannig að ég ætla draga mál mitt saman í lokaorð.
Héðan af ætla ég að leggja mitt að mörkum til að vera meira klæddur í rokk stíl.  Ef þið viljið vera með þá er hér listi sem þið getið farið eftir:
1.Sítt hár.
2.Leðurjakki.
3.Svartur/hvítur bolir.
4.Skegg(það eru ákveðnar reglur um hvernig skegg, talið bara við mig ef þið eruð áhugasöm = unnarfreyr@msn.com)
5.Gallabuxur(þessar bláu eru bestar en þær mega vera svartar)
6.Rambo klútur í hárið(þegiði þetta er rokk)
7.Gönguskór/gamlir hvítir strigaskór/rifnir Converse skór með nælu þar sem rifan er
8.Hverskyns víkinga skartgripir
9.Skegg.
10.Skegg.
11.Hljómsveitarbolir(verður að flokkast sem rokk bolur, og já No Doubt er rokk)
12.Engir Eyrnalokkar(ekki nema það sé beinagrind eða eitthvað þvíumlíkt)
13.Víkinga tattoo.
14.Axlarbönd(mjög rokklegt)
15.Skegg.
16.Spandex buxur(ætti að vera hérna ofar, en það er erfitt að finna svona buxur á Íslandi þannig að ég hef þær svona neðarlega)
17.Mála sig hvítan með svörtum línum(allir hafa séð einhvern gaur sem hefur gert þetta, eini gallinn við þetta trikk er að allir álíta þig homma ef þú gerir þetta.

Þetta er ekki tæmandi listi en ég þarf að halda áfram að læra undir próf þannig að ég klára hann seinna.

Lag dagsins Unnar - Afi og amma útí garði grafin af Nonna.

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5